Kæru Rótarýfélagar, gleðilega páska.
Ég vona að þið eigið öll gott frí yfir hátíðirnar og njótið góðra stunda með vinum og ættingjum.
Sem fyrr er margt að gerast hjá okkur í Rótarý og ýmislegt skemmtilegt framundan. Fyrst langar mig að þakka ykkur öllum fyrir frábæran árangur í félagaþróun. Eins og þið vitið, þá hefur helsta áherslumál starfsársins verið að snúa við þróun, þar sem félögum hefur verið að fækka í Rótarý. Frá upphafi starfsárs hefur okkur fjölgað um 34 félaga, eða um 3%. Þetta er að sjálfsögðu alveg frábær árangur. Við erum nú 1.131 skráðir félagar hér á landi og við erum sem fyrr stærsta Rótarýsvæði í heimi - á hvern íbúa. Eins og þið vitið, að þá er markmið okkar að félagar verði um 1.200 á hverjum tíma og við eigum því enn eitthvað verk óunnið. Ég er hins vegar viss um að þetta markmið mun nást með áframhaldandi góðu samstarfi allra Rótarýfélaga hér á landi.

Við erum að vinna að hugmyndum um stofnun nokkurra Rótarskota á næstu vikum. Eins og þið vitið, að þá eru nú um 80.000 íslendingar hér á landi, sem eiga annað móðurmál en íslenska. Við erum þegar með stóran og öflugan enskumælandi klúbb, en við höfum huga á að skoða Rótarskot þar sem pólska eða baltnesk tungumál verða notuð á fundum. Það er að sjálfsögðu hægt að skoða fleiri slík tækifæri, en við munum a.m.k. byrja á þessu. Það væri frábært að heyra frá Rótarýfélögum ef að þið hafið hugmyndir eða tengsl við aðila, sem gætu nýtt sér slík tækifæri. Sem fyrr er eitt af meginmarkmiðum Rótarý að skapa og efla tengsl á milli einstaklinga og þetta skapar örugglega góð tækifæri fyrir þá sem taka með okkur þátt í þessu verkefni.
Við erum einnig að vinna að því að efla Rótarýklúbb Vestmannaeyja og það væri frábært að heyra frá félögum, ef þeir vita um aðila, sem gætu haft áhuga á því að koma að góðu starfi þar. Félagar okkar í Vestmannaeyjum þurfa aðeins hjálp við að fjölga félögum. Við verðum að tryggja, að bæjarfélag eins og Vestmannaeyjar verði áfram með stóran og öflugan Rótarýklúbb.
Stóri Plokkdagurinn er framundan og mig langar að hvetja alla Rótarýfélaga til að taka þátt í viðburðum tengdum þessum degi. Það er líka frábær hugmynd að nýta daginn til að vekja athygli á starfi okkar og hvetja fleiri til að koma og taka þátt í starfi okkar. Fáum fjölskyldur, vini og nágranna til að koma og taka þátt. Meðfylgjandi er frétt um daginn.
Rótarýklúbbur Ólafsfjarðar á 70 ára afmæli í dag og mig langar til að senda öllum félögum okkar bestu afmæliskveðjur og hamingjuóskir með frábært starf. Sagan er orðin löng og glæsileg og hún heldur áfram.
Nýlega var undirritaður samstarfsamningur á milli Rótarýumdæmanna á Íslandi og í Litháen um samstarf. Breytingar hafa verið gerðar á stjórn Rotary Norden og Verkefnasjóðurinn okkar hefur sjaldan eða aldrei verið öflugari. Nánar má lesa um þessi atriði og ýmislegt annað í fréttatenglum, sem fylgja með bréfi þessu.
Takk fyrir frábært samstarf það sem af er þessu starfsári og ég ítreka óskir til ykkar allra um gleðilega páska og ég hlakka til að sjá ykkur öll fljótlega. Gangi ykkur áfram vel í ykkar störfum.